Föstudagur 7. september 2018
(Birt með fyrirvara um breytingar)
Salur |
Tímasetning |
Heiti viðburðar |
Skipuleggjandi |
Um viðburðinn |
|
| Hamrar | 10:00 | 10:50 | Leyfðu þér að fljúga en náðu mjúkri lendingu | Háskólinn á Akureyri | Olga Ásrún Stefánsdóttir heldur erindi um starfslok. |
| Hamraborg | 10:45 | 11:45 | Verður iðnaðarmaður framtíðarinnar RÓBÓTI? | Samiðn | Í almennri umræðu er talað um að fjórða iðnbyltingin sé hafin. En hvaða áhrif mun hún hafa t.d. á störf iðnaðarmanna í framtíðinni? Munu róbótar taka yfir störfin að miklu leyti eða munu þeir fyrst og fremst breyta þeim og skapa tækifæri til að gera störfin áhugaverðari? Til að ræða áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar og hvaða tækifæri hún býður iðnaðarmönnum, mun Ragnheiður Hrefna Magnúsdóttir forstöðumaður viðhaldsþjónustu hjá Veitum vera með framsögu og í pallborði verða fulltrúar frá atvinnulífi, verkmenntaskólum og endurmenntunarstofnunum til að gefa okkur innsýn inn í framtíðina. |
| Hamrar | 11:00 | 12:00 | Sjúkraþjálfarar í heilsugæslu | Félag sjúkraþjálfara | Pétur Heimisson framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og Þóra Elín Einarsdóttir sjúkraþjálfari HSA segja frá tilraunaverkefni með sjúkraþjálfara í heilsugæslu og hvernig aðkoma sjúkraþjálfara hefur bætt þjónustu heilsugæslu HSA og létt á álagi á heilsugæslulækna. Horft er til þessarar starfsemi víða og eru fyrstu heilsugæslustöðvar Reykjavíkur að ráða sjúkraþjálfara í svipuð verkefni á næstunni. |
| Lundur | 11:00 | 11:30 | Ný OECD skýrsla og metoo | Norræna félagið | |
| Hamragil | 11:45 | 12:00 | Tilnefningar til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs kynntar | Norðurlönd í fókus | Tilkynnt hverjir eru tilnefndir til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, þema ársins er verndun lífsins í hafinu. |
| Hamragil | 12:00 | 12:30 | Setning | LÝSA | Katrín Jakobsdóttir opnar hátíðina og Ólafur Stefánsson flytur ávarp |
| Hamraborg | 12:30 | 13:15 | Efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu | Forsætisráðuneytið | Starfshópur um eflingu trausts á stjórnmálum kynnir hér nokkur atriði úr vinnu sinni. |
| Hamrar | 13:00 | 14:00 | Plastmengun - hvað getum við gert? | Samfylkingin | Umræður um hvað við getum gert hér á landi sem þjóð og hvert og eitt til að vinna gegn plastmengun. |
| Dynheimar | 13:00 | 13:45 | Krabbameinsfélagið | Krabbameinsfélagið | Örerindi. |
| Lundur | 13:00 | 13:30 | Jafnlaunavottun | Norræna félagið | |
| Hamraborg | 13:30 | 14:30 | Þarfar umbætur innviða í ferðaþjónustu |
Arkítektafélag Íslands | Verkefnið er samstarf Boris Brorman Jensen (Tredje Natur), KRADS, Reiulf Ramstad Architects, Susan Carruth og Rasmus Hjortshøj (COAST) um þróunaráætlun fyrir umbætur innviða ferðaþjónustu á Íslandi. Í fyrstu er markmiðið að undirbúa efni til innblásturs, eins konar “atlas” með tilheyrandi gögnum, skýringarmyndum, sjónarmiðum, kortum og völdum ljósmyndum ásamt arkítektónískum for-rannsóknum og skissutillögum. |
| Dynheimar | 14:00 | 14:30 | Geta hjúkrunarfræðingar pissað standandi? | Háskólinn á Akureyri | Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir og Gísli Kort Kristófersson: Geta hjúkrunarfræðingar pissað standandi? Eru karlar ómögulegir hjúkrunarfræðingar? Hvað segir sagan og rannsóknarniðurstöður. |
| Sófaspjall
Lundur |
14:00
14:00 |
14:30
14:30 |
Tölum saman um jafnrétti
Kosningarnar í Svíþjóð |
Jafnréttisstofa
Norræna félagið |
Starfsfólk Jafnréttisstofu býður upp á uppistand og opið spjall um það sem helst brennur á áheyrendum varðandi jafnréttismál.
|
|
Hamrar |
14:30 | 16:00 | Samfélagsábyrgð fyrirtækja | Festa | |
| Dynheimar | 14:30 | 15:00 | Innleiðing fjölskylduhjúkrunar á SAk | Háskólinn á Akureyri | Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir (HA) og Snæbjörn Ómar Guðjónsson (SAk): Innleiðing fjölskylduhjúkrunar á SAk. Samstarf HA og SAk um að bæta gæði þjónustu spítalans |
| Hamraborg | 14:45 | 15:45 | Ójöfnuður á Norðurlöndum | Samfylkingin | Umræður um hvað stjórnvöld geta gert til að auka jöfnuð í samfélaginu, afleiðingar ójöfnuðar og líklegar afleiðingar ef ekki er brugðist við ef ójöfnuður er að aukast. |
| Lundur | 14:45 | 15:15 | Í þágu þolenda | Háskólinn á Akureyri | Sigrún Sigurðardóttir og Karen Birna Þorvaldsdóttir: Kynning á tilraunaverkefni í þágu þolenda í alvarlegum kynferðisbrotum. Samstarf Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, SAk, HSN og Rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi við Háskólann á Akureyri. |
| Dynheimar | 15:15 | 16:00 | Af hverju ættu skapandi fyrirtæki að hafa viðskiptalíkan? | Eyþing | Kynning á tilgangi og eðli viðskiptalíkana og sérstök yfirferð á Creative Business Model Toolkit sem er hugsað fyrir skapandi hæfileikafólk er hefur hug á að setja fyrirtæki á laggirnar, sem og skapandi frumkvöðla á fyrstu stigum rekstrar. Viðskiptamódelið nýtist einnig reyndara athafnafólki sem ekki hefur bakgrunn í viðskiptafræðum eða stjórnun. |
| Lundur | 15:30 | 16:00 | Þingið til þín | Píratar | Taktu þátt í gerð þingfrumvarps. |
| Hamragil | 16:00 | 16:45 | Er rithöfundur samfélagsrýnir? | Lýsa | Höfundarnir Auður Jónsdóttir, Guðmundur Andri og Hallgrímur Helgason fjalla um hlutverk rithöfunda sem samfélagsrýna. |
| Hamrar | 17:00 | 19:00 | Framtíðin og fjögur ár | Akureyrarbær | Örfyrirlestrar og samtal við bæjarstjórn Akureyrar og sveitarstjórnarfólk á Norðausturlandi um næstu fjögur ár. |
| Hamraborg | 18:00 | 20:00 | UseLess | Norræna félagið | Heimildarmynd um matar- og tískusóun og umræður með framleiðendum myndarinnar. |
Laugardagur 8. september 2018
(Birt með fyrirvara um breytingar)
| Salur | Tímasetning | Heiti viðburðar | Skipuleggjandi | Um viðburðinn | |
| Dynheimar | 10:00 | 11:00 | Tengsl líkamlegrar og andlegrar heilsu og tengsl áfalla við líkamleg einkenni. |
Félag sjúkraþjálfara | Fyrirlestrar og umræður um tengsl líkamlegrar og andlegrar heilsu og tengsl áfalla við líkamleg einkenni. |
| Lundur | 10:00 | 12:00 | Gleymna óskin | Ólafur Stefánsson -LÝSA | Vinnustofa með Ólafi Stefánssyni þar sem farið er í blöndu af kundalíni, spuna og sagnamennsku, kirtan og hugleiðslu. |
| Hamraborg | 11:00 | 11:45 | Farsæl öldrun þrátt fyrir heilsubrest - er það mögulegt? | Farsæl öldrun | |
| Hamrar | 12:00 | 13:00 | Aðgerðir í loftslagsmálum: Hlutverk sveitafélaganna | Landvernd | Hvert er hlutverk sveitarfélaga í loftlagsmálum. |
| Hamraborg | 12:15 | 13:45 | Menntastefna til ársins 2030 | LÍS | Menntastefna til ársins 2030 verður til umræðu með sérstakri áherslu á háskólastigið. Engin menntastefna er til staðar í íslenskri stjórnsýslu, en mennta- og menningarmálaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur staðfest að vinna við skrif slíkrar stefnu til ársins 2030 hefur loksins hafist. |
| Setberg | 12:30 | 13:00 | DíaMat félag um díalektíska efnishyggju | ||
| Lundur | 12:45 | 13:15 | Framtíðir og nýsköpun | Nýsköpunarmiðstöð Íslands | Framtíðarfræði er hugtak sem hefur fengið lítið rými í umræðum um nýsköpun hér á landi. Tilhneiging er að ræða um framtíðina í eintölu en ekki í fleirtölu þ.e. framtíðir. Hins vegar hefur verið sýnt fram á að birtingarform framtíðarinnar getur verið margs konar. Þess vegna þarf hún að vera í sífelldri endurskoðun. Ekki er hægt að fresta framtíðinni hún er alltaf ný, ilmar af tækifærum en ógnar ef hún er misskilinn eða látin eiga sig. Í fyrirlestrinum verður framtíðarfræðin samtvinnuð hugmyndum um nýsköpun á hagnýtan hátt. |
| Dynheimar | 13:00 | 13:30 | Krabbameinsfélagið | Örfyrirlestrar | |
| Setberg | 13:00 | 13:45 | Leshringur um Marxisma | Alþýðufylkingin | |
| Hamrar | 13:15 | 14:30 | Betri heimur fyrir alla. | Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun snúa að því að búa til betri heim fyrir alla. Ríkisstjórnin samþykkti nýverið þau undirmarkmið sem sett verða í forgang á Íslandi og gaf út stöðuskýrslu um stöðu Íslands gagnvart markmiðunum. Hér gefst tækifæri til þess að kynnast áætlunum ríkisstjórnarinnar við innleiðingu Heimsmarkmiðanna sem og hvernig markviss innleiðing þeirra á vettvangi ríkis og sveitarfélaga getur stuðlað að betri heilsu og vellíðan íbúa á öllum æviskeiðum. |
| Lundur | 13:30 | 14:15 | Hvað er hinsegin? | Samtökin ’78 | Hefuru heyrt um pankynhneigð? Hvað er kynsegin? En þetta hán? Hinsegin regnhlífin er sífellt að stækka og því fylgja allskonar orð sem ekki allir þekkja. Í þessu erindi verður farið yfir helstu hugtök er tengjast hinsegin heiminum, auk yfirlits yfir stöðu hinsegin fólks á Íslandi í dag. Komdu til að fræðast og ræða saman um fjölbreytileika kyns og kynhneigðar! |
| Hamraborg | 14:00 | 15:30 | Hvernig er að vera útlendingur á íslenskum vinnumarkaði? | ASÍ | |
| Dynheimar | 14:00 | 14:45 | Umræðufundur um lífeyrismál | Alþýðufylkingin | Umræðufundur um lífeyrismál |
| Sófaspjall | 14:00 | 14:30 | Alsjándi auga Fiskistofu verður með eftirlit á staðnum | Fiskistofa | Fiskistofa býður þér í samtal |
| Hamrar | 14:45 | 15:00 | Aqua María | Bandalag Íslenskra listamanna | Gjörningaklúbburinn flytja gjörninginn Aqua María og í kjölfarið býður BÍL til samtals. |
| Dynheimar | 15:00 | 15:30 | Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningum frá 2006 | Háskólinn á Akureyri | Grétar Þór Eyþórsson: Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningum frá 2006. Hvað hefur gerst og hvert stefnir? |
| Lundur | 15:00 | 15:45 | Þingið til þín | Píratar | |
| Dynheimar | 15:30 | 16:00 | Lýðræðishlutverk háskóla | Háskólinn á Akureyri | Anna Ólafsdóttir og Sigurður Kristinsson: Lýðræðishlutverk háskóla. Spurningarform til að kalla á umræður og samræðu um það hvernig háskóli þjóni lýðræðinu, hvernig starfsemi hans geri það hugsanlega ekki og hvernig háskólar ættu að þróast út frá hugmyndinni um lýðræði |
| Sófaspjall | 16:00 | 16:30 | Stefán Bogi og Jónas Sig | LÝSA | Stefán Bogi og Jónas Sig ræða vel valin málefni sem þeir eru alls ekki sammála um. Niðurstaðan hlýtur að verða stórkostleg! |
| Hamragil | 16:30 | 17:00 | Uppistand | LÝSA | Uppistand með Sögu Garðars og Dóra DNA |
| Hamragil | 17:00 | 18:00 | Tónleikar með Jónasi Sig og Diskósúpa | LÝSA | Tónleikar með Jónasi Sig og Diskósúpa undir stjórn Sögu Garðarsdóttur |
Hér er má nálgast dagskrá Fundar fólksins 2017
Hér er pdf af dagskrárbæklingnum 2017.