Drög að dagskrá Fundar fólksins 2017, birt með fyrirvara um breytingar
Hér er dagskrárbæklingurinn 2017 í PDF
Föstudagur 8. september 2017
Salur |
Tímasetning |
Heiti viðburðar |
Um viðburðinn |
Ábyrgðaraðili |
| Hamrar | 10:00-11:30 | Skipulag þéttbýla | Skipulag þéttbýlis getur haft áhrif á öryggi og þægindi íbúa og einnig á umhverfisáhrifin sem hljótast af byggðinni. Við byggingu stærri hverfa getur gott íbúasamráð verið afgerandi fyrir vel heppnaða byggð. Byggð á Íslandi er í örum vexti og því mikilvægt að huga að góða skipulagi. | Vistbyggðaráð |
| Hamragil | 12:00-12:30 | Setningarathöfn | Forseti Norðurlandaráðs, Britt Lundberg opnar hátíðina. Tónlistarmaðurinn KK flytur nokkur lög. | Fundur fólksins |
| Hamrar | 12:30-14:00 | Verður framtíðarkennarinn app? | Getur notkun tölvutækni í skólakerfinu aukið skilvirkni og gæði? Kann svo að fara að ekki verði nein sérstök þörf fyrir kennara í framtíðinni? Hvað þarf til þegar tæknin er notuð í kennslu – hvert mun menntun þróast? |
Kennarasamband Íslands |
| Dynheimar | 12:30-13:10 | Það minnsta sem þú getur gert! Grænn lífstíll, umhverfismerki og siðræn neysla. |
Elva Rakel Jónsdóttir, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun, fjallar um grænan lífsstíl og umhverfismerki. Brynhildur Pétursdóttir, Neytendasamtökunum, fjallar um siðræna neyslu. | AkureyrarAkademían, Umhverfisstofnun og Neytendasamtökin |
| Svalir | 12:30-13:00 | Opnun norrænu dagskrárinnar | Britt Lundberg, forseti Norðurlandaráðs. Kristín Sigtryggsdóttir sópransöngkona syngur norræn lög við undirleik. |
Norræna félagið/Norden i fokus |
| Nanna | 13:00-13:50 | Hringborðsumræður Almannaheilla | Hringborðsumræður um framtíð almannaheillasamtaka | Almannaheill |
| Hamraborg | 13:00-13:30 | Hugræn atferlismeðferð sýnd á myndrænan hátt |
Hugræn atferlismeðferð sýnd á myndrænan hátt. Sögumaður er Saga Garðarsdóttir. | Bernska |
| Setberg | 13:00-14:00 | Hvað er þessi félagsvæðing, sem allir eru að tala um? | Alþýðufylkingin | |
| Bót | 14:00-17:00 | Listasmiðja fyrir fjölskyldur og börn | Búin verður til sameiginlegur skúlptúr sem fjallar um það að vera einstaklingur í samfélagi við aðra. Þátttakendur fá tækifæri til að tjá sig myndrænt á sinn einstaka hátt. Einnig verður furðubílasmiðja fyrir börn þar sem þau fá að hanna sinn eigin bíl. Kennarar eru myndlistakonurnar Brynhildur Kristinsdóttir og Dagrún Matthiasdóttir |
Menningarfélag Akureyrar og Fab Lab |
| Hamraborg | 14:00-16:00 | Áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélagið | Málstofa um ábyrga ferðaþjónustu sem skerpir á hugmyndinni um að áhrif ferðaþjónustufyrirtækja á nærsamfélagið eru efnahagsleg, umhverfisleg og félagsleg - hér er fókus á félags- og efnahagsleg áhrif. Dagskrá: - Unnur Valborg, formaður ferðamálaráðs – Ávarp og hvatning - Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála - “Frá sjónarhóli íbúa” - Deloitte – kynning á beinum áhrifum ferðamanna á ríki og sveitarfélög - Róbert Guðfinnsson, fjárfestir á Siglufirði - áhrif á nærsamfélag - Pallborð og umræður úr sal - Lokaorð – Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar |
Festa og Ferðaklasinn |
| Dynheimar | 14:00-14:50 | Viðreisn - fyrir hvað stöndum við? | Velferðaráðuneytið | |
| Nanna | 14:00-14:50 | Rífum niður hindranir Norðurlanda! | Það á að vera hægt að flytja, ferðast til vinnu, stunda nám og reka fyrirtæki þvert á landamæri Norðurlanda án óþarfa stjórnsýslulegra hindrana. Er hægt að láta þann draum rætast? Britt Lundberg, forseti Norðurlandaráðs, Sigurður Ingi Jóhannesson, alþingismaður, Íslandsdeild Norðurlandaráðs, Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður, Íslandsdeild Norðurlandaráðs, Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi Íslands í Stjórnsýsluhindranaráði Norðurlanda Umræðustjóri: Bogi Ágússon fréttamaður, formaður Norræna félagsins. |
Norræna félagið/Norden i fokus |
| Hamrar | 14:15-15:45 | Norræn velferð og félagsleg undirboð | Opin fundur Þingflokks jafnaðarmanna í Norðurlandaráði, ASI, SAMAK og Samfylkingarinnar. Á fundinum verður fjallað um félagsleg undirboð á norrænum vinnumarkaði í fortíð, nútíð og framtíð. Rætt verður um þær leiðir sem færar eru og hafa reynst best til að bregðast við þeirri ógn við norrænan vinnumarkað sem félagsleg undirboð eru. Danska hugmyndasmiðjan Cevea gaf nýlega út skýrslu um félagsleg undirboð á norrænum vinnumarkaði og þau mál hafa verið mjög til umfjöllunar innan SAMAK (samtök norrænna jafnaðarmanna og launþegahreyfinga) og Norðurlandaráðs, ekki síst í kjölfar skýrslu Poul Nielsons um framtíð norræna vinnumarkaðarins. Á fundinum munu fulltrúar stjórnmálaflokkanna, aðila vinnumarkaðarins og lögreglunnar einnig ræða stöðu mála á Islandi og framtíðarhorfur. | Jafnaðarmenn á Norðurlöndunum |
| Setberg | 14:30-15:30 | Borgarasviðið | Kynningarfundur: Leikfélag Akureyrar vill með Borgarasviðinu gefa borgurum Akureyrar tækifæri til að upplifa leikhúsið sem rými þar sem fólk hittist, hefur samskipti og tengist skapandi, þvert á aldur, kyn og félagslegan bakgrunn. | Leikfélag Akureyrar |
| Svalir | 14:30-15:00 | Framtíð háskólamenntunar | Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, kynnir sína sýn á framtíð háskólamenntunar og á síðan samtal við fundargesti um málefnið. |
Háskólinn á Akureyri |
| Dynheimar | 15:00-16:00 | Heilsuefling aldraðra | Við lifum lengur en lifum við betur? Sjúkraþjálfarar hafa þá sýn að bæti þurfi lífi við árin. Hreyfing og heilsuefling verði lykilatriði í þeirri þróun að aldraðir séu sjálfbjarga og virkir þátttakendur í eigin lífi. Til þess að svo megi verða þurfa margir aðilar að leggjast á eitt, þar á meðal yfirvöld, heilbrigðisstarfsmenn, s.s. sjúkraþjálfarar, og eldri borgaranir sjálfir. |
Félag sjúkraþjálfara |
| Nanna | 15:00-15:50 | Kosningar í Noregi | Norðmaðurinn Yngvar Björshol flytur stutt erindi um þingkosningarnar í Noregi sem fram fara 11. september. Að erindi loknu ræðir Yngvar við Boga Ágústsson fréttamann og formann Norræna félagsins um kosningarnar. |
Norræna félagið/Norden i fokus |
| Sófaspjall | 15:00-15:30 | Læsi er lykillinn | Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari, verður sérstakur gestur í sófaspjalli á Alþjóðadegi læsis. Hann mun spjalla við mann og annan um læsi og lestraránægju. Ævar Þór fékk nýverið hvatningarverðlaun JCI sem framúrskarandi ungur Íslendingur 2017. | Alþjóðadagur læsis |
| Svalir | 15:30-16:00 | Framtíð háskólamenntunar | Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, kynnir sína sýn á framtíð háskólamenntunar og á síðan samtal við fundargesti um málefnið. | Háskólinn á Akureyri |
| Hamragil | 15:50-16:10 | Tónlistaratriði með KK | Tónlistarmaðurinn KK flytur nokkur lög. | Fundur fólksins |
| Hamraborg | 16:00-17:30 | Skiptir kyn máli í bæjarpólitík? | Á næsta ári verða sveitarstjórnarkosningar. Hlutur kvenna er nú 44% sveitarstjórnarmanna en fáar konur eru sveitarstjórar eða í forystu fyrir sitt sveitarfélag. Hvernig stendur á þessu? Hvaða mál brenna á konum og körlum og er munur þar á? Hvernig standa sveitarfélögin sig þegar kemur að jafnrétti kynjanna? | Jafnréttisstofa og Samband íslenskra sveitarfélaga |
| Hamrar | 16:00- 16:50 | Traust — verðmætasta auðlind Norðurlanda |
Traust, eða „tillit“ er líklega ein verðmætasta auðlind Norðurlandanna. Hvers vegna er traust á hærra stigi á Norðurlöndunum en í flestum öðrum ríkjum? Hvernig njótum við sem samfélög góðs af því? Hvað getum við gert til að viðhalda og efla traust? Ulf Andreassen, höfundur ritsins Tillit – Det nordiska guldet, heldur erindi. Umræður að loknu erindi: Britt Lundberg, forseti Norðurlandaráðs, Oddný Harðardóttir, alþingsmaður, Íslandsdeild Norðurlandaráðs, Sigurður Ingi Jóhannesson, alþingismaður, Íslandsdeild Norðurlandaráðs, Auður H. Ingólfsdóttir, sérfræðingur á Rannsóknarstofnun ferðamála. Umræðustjóri: Bogi Ágústsson fréttamaður, formaður Norræna félagsins. |
Norræna félagið/Norden i fokus |
| Sófaspjall | 16:00-16:30 | Saga Garðarsdóttir spjallar um verkalýðsbaráttu | Saga mun flytja okkur gaman efni um verkalýðisbaráttuna og spjalla um málefnið í sófanum. | Eining-Iðja, FVSA, RSÍ, Samiðn, SGS og ASÍ |
| Dynheimar | 16:05-16:50 | Staða leigjenda | Neytendasamtökin standa fyrir pallborði um stöðu leigjenda og ástandið á húsnæðismarkaði, en Neytendasamtökin hafa um árabil rekið Leigjendaaðstoðina. Í pallborðinu verða Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra, Logi Einarsson þingmaður Samfylkingarinnar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur hjá hagdeild ASÍ og Hrannar Már Gunnarsson lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum en Brynhildur Pétursdóttir stýrir umræðum. | Neytendasamtökin |
| Nanna | 16:30-17:30 | Húmanisminn og helstu baráttumál húmanista á Íslandi |
Rædd verða helstu mál sem Siðmennt berst fyrir, s.s. aðskilnaður ríkis og kirkju, og þá hvað felst í aðskilnaði, samskipti skóla og trúfélaga og spurninguna um hvers vegna ekki ætti að reka trúboð í opinberum skólum en kenna þess í stað trúarbragðafræði. Veraldlegt samfélag, hvað þýðir það, og margt annað. Lýðræði og mannréttindi verða einnig rædd. Einnig verða rædd helstu mál sem snerta alþjóðamál, s.s. baráttan fyrir tjáningarfrelsi, morð á bloggurum og trúfrelsi svo fátt eitt sé nefnt. | Siðmennt |
| Dynheimar | 17:00- 18:00 | Norræna módelið | Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands og fulltrúi í Norðurlandaráði, kynnir helstu atriði norræna módelsins í stuttu máli. Silje Rygland frá SAMAK (samstarfsvettvangi fyrir jafnaðarmannaflokka og verkalýðshreyfinga á Norðurlöndum) segir frá samstarfi verkalýðsfélaga og jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndum. Almennar umræður að loknum inngangserindum. |
Samfylkingin - jafnaðarmannaflokkur Íslands |
| Hamrar | 17:00-17:50 | Norrænar og norðlenskar umhverfislausnir |
Það er margt sem við getum gert til að minnka álagið á náttúruna í daglegu lífi. Danir hafa t.a.m. náð að draga stórlega úr matarsóun á landsvísu með einfaldri hugarfarsbreytingu. Á fundinum ræða þátttakendur umhverfislausnir sem við getum öll tileinkað okkur. Þátttakendur: Albertína Elíasdóttir, frkvstj. Eims; Guðmundur Haukur Sigurðarson, frkvstj. Vistorku; Kristín Ingvarsdóttir, ritari skrifstofu Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og Margrét Hugadóttir, verkefnisstjóri hjá Landvernd. Fundarstjóri: Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi. |
Norræna félagið/Norden i fokus |
| Sófaspjall | 17:00-17:30 | Endurheimt votlendis á að vera forgangsmál |
Eyþór Eðvarðsson frá París 1,5 ræðir votlendismálin við Dr. Árna Bragason landgræðslustjóra og Dr. Hlyn Óskarsson, fremsta vísindamann landsins á sviði votlendis. Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi er um 16,5 milljónir tonna. Um 70% af þeirri losun eða 11,5 milljónir tonna koma frá framræstu votlendi og einungis 15% af öllu framræstu landi á Íslandi eru nýtt til landbúnaðar. Lítil áhersla er hjá stjórnvöldum á endurheimt votlendis því losun úr framræstu votlendi fellur ekki undir skuldbindingar ríkja gagnvart Loftlagssamningi Sameinuðu þjóðanna. Því fer það litla fjármagn sem sett er í loftslagsbaráttuna í að draga úr þeim 30% sem falla undir Loftslagssamninginn. Auðvelt er að ná fljótlega miklum árangri í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að endurheimta votlendið. Loftslagsbreytingar eru dauðans alvara og árangur Íslands er að hér er losun um tvöföld á við Evrópusambandið. Engin stefna er til og nær engar aðgerðir hafa verið ákveðnar. Enginn stjórnmálaleiðtogi var krafinn svara af fjölmiðlum um loftslagsmálin í síðustu þingkosningum og stutt er í sveitarstjórnarkosningar og spurning hvort fjölmiðlar séu vandanum vaxnir. |
París 1,5 |
| Hamragil | 17:30-18:00 | Norðlenskar konur í tónlist | Norðlensku tónlistarkonurnar Helga Kvam, Lára Sóley Jóhannsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir flytja blöndu af hugljúfum og skemmtilegum lögum úr ýmsum áttum. |
Fundur fólksins |
| Dynheimar | 18:00-18:50 | Norrænt pub-quiz | Hvað veistu um Norðurlönd? Taktu þátt í skemmtilegum norrænum spurningaleik. Veglegir vinningar í boði |
Norræna félagið/Norden i fokus |
Laugardagur 9. september 2017
Salur |
Tímasetning |
Heiti viðburðar |
Um viðburðinn |
Ábyrgðaraðili |
| Nanna | 10:30-11:30 | Valdefling fólksins - Sósialismi 21. aldarinnar |
Boðið verður til umræðu um hlutverk sósíalisma og sósíalískra félagshreyfinga í því að efla vald almennings innan stofnana samfélagsins, hvort sem um er að ræða ríki, sveitarfélög, verkalýðsfélög, þjónustustofnanir eða vinnustaði. | Sósíalistaflokkur Íslands |
| Hamraborg | 11:00-11:50 | Er skapandi starf metið að verðleikum? | Jóna Hlíf Halldórsdóttir formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna, Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu, Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri og myndlistarkonan Rúrí verða í pallborði og velta fyrir sér hvort skapandi starf sé metið að verðleikum auk fleiri spurninga um hvernig hægt sé að efla menningu, lýðræði og gangrýna hugsun í samfélaginu. Átak SÍM, Við borgum myndlistarmönnum, hefur verið áberandi og einnig umræðan um listkennslu í skólum. Fjármagn sem fer til menningarmála og mikilvægi menningar fyrir samfélagið verður einnig rætt. Öllum er velkomið að leggja orð í belg og taka þátt í umræðunum. |
Samband íslenskra myndlistarmanna og Listasafnið á Akureyri |
| Hamrar | 11:00-11:40 | Tæknibyltingin | Á fundinum munu formaður Samfylkingarinnar Logi Einarsson og Oddný G. Harðardóttir þingflokksformaður ræða um hverng við getum undirbúið okkur fyrir nýju tæknibyltinguna og séð til þess að með henni fylgi samfélagslegur ávinningur. Ef við gerum ekkert þá er allt eins líklegt að ójöfnuður aukist til muna og almenn velferð minnki. |
Samfylkingin - jafnaðarmannaflokkur Íslands |
| Dynheimar | 11:00-12:00 | Heilsugæslan og sjúkraþjálfun | Vaxandi eftirspurn er eftir aukinni þverfaglegri nálgun innan heilsugæslunnar á Íslandi, sem á að vera fyrsti viðkomustaður almennings í heilbrigðiskerfinu. Gögn sýna að yfir 40% þeirra sem leita til heilsugæslustöðva landsins koma vegna stoðkerfisvandmála og fjölmargir leita til þeirra vegna afleiðinga lífstílssjúkdóma af ýmsu tagi. Þekking sjúkraþjálfara á þessum málefnum er yfirgripsmikil og myndi nýtast afar vel í framvarðasveit heilsugæslunnar. | Félag sjúkraþjálfara |
| Sófaspjall | 11:00-11:30 | Sófaspjall um samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna |
Ieva Hermansone, ráðgjafi á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi, og Ásdís Eva Hannesdóttir, frkvstj. Norræna félagsins, ræða samstarfið og starf Norrænu ráðherranefndarinnar í Eystrasaltsríkjunum við Sigurð Ólafsson, verkefnastjóra Norðurlanda í fókus á Íslandi. | Norðurlönd í fókus |
| Hamraborg | 12:00-12:50 | Sjálfstæðisflokkurinn | Sjálfstæðisflokkurinn | |
| Sófaspjall | 12:00-12:30 | Málefni Siðmenntar rædd í sófanum | Athafnir Siðmenntar verða kynntar og athafnarstjórar félagsins sem starfa á Norðurlandi setjast í sófann en þeir eru hluti af 40 manna hópi athafnarstjóra Siðmenntar. Veraldlegar nafngjafir, giftingar og útfarir eru valmöguleikar sem í boði eru fyrir alla og vinsældir þeirra hafa aukist verulega á undanförnum árum. |
Siðmennt |
| Nanna | 12:00-12:50 | Eru Norðurlönd boðberar friðar og framfara á norðurslóðum? |
Hvað hafa Ísland og önnur norræn ríki lagt af mörkum til sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum og hver eru helstu viðfangsefn sem þarf aðtakas á við á næstu árum? Hafa Norðurlönd verið samstíga í stefnumörkun um málefni norðurslóða? Geta þau gert betur í þeim efnum? Ari Trausti Guðmundsson, alþingismaður og formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Umræðustjóri Bogi Ágústsson fréttamaður. |
Norræna félagið/Norden i fokus |
| Hamrar | 12:30-13:30 | Akureyri, barnvænt samfélag | Á vegum Akureyrarbæjar er unnið að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að uppfylla réttindi barna. Fulltrúar úr ungmennaráði kynna verkefnið. |
Akureyrarbær |
| Dynheimar | 12:30-13:30 | Gagnsæi og stjórnmál | Píratar | |
| Svalir | 12:30-13:00 | Framtíð geðheilbrigðisþjónustunnar: Samþætt nálgun? |
Gísli Kort Kristófersson, formaður hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri. | Háskólinn á Akureyri |
| Hamraborg | 13:00-13:50 | Lækkun kosningaaldurs | Rýnt verður í stöðu ungs fólks í íslensku samfélagi, minnkandi stjórnmálaþátttöku og hugmyndir um lækkun kosningaaldurs. |
Ung vinstri græn |
| Setberg | 13:00-13:50 | Alþýðufylkingin | Alþýðufylkingin | |
| Nanna | 13:00-13:50 | Sölva saga unglings | Sölva saga unglings, Arnar Már Arngrímsson, höfundur sigurverks Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2017, ræðir við Sigurð Ólafsson, ritara skrifstofu verðlaunanna. |
Norræna félagið/Norden i fokus |
| Sófaspjall | 13:00-13:30 | Norrænt samstarf og norræna módelið | Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði | |
| Göngugata/ Hafnarstræti |
13:00-15:00 | Sýrlenskur matur fyrir fólk á flótta | Í tengslum við Fund fólksins verður haldin fjáröflun til styrktar UNICEF. Þú kaupir eina máltíð fyrir sjálfa/n þig og aðra fyrir barn á flótta. Khattab al Mohammad sem nýlega opnaði Aleppo kebab á Akureyri mun sjá um eldamennskuna í veitingavagni sínum ásamt fjölskyldu sinni. |
Fundur fólksins |
| Svalir | 13:30 -14:00 | Kynning á starfsemi Grófarinnar | Grófin geðverndarmiðstöð | |
| Hamrar | 13:40-14:15 | Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum til 2030 – ertu með? |
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum til 2030 er unnin í öflugu samstarfi stjórnsýslunnar, sveitarfélaga, félagasamtaka og annarra hagaðila ásamt því að allir geta sent inn tillögur að aðgerðum sem miða að minni losun gróðurhúsalofttegunda. Ímálstofunni munum við kynna vinnuferlið við gerð áætlunarinnar. Við munum einnig kynna fyrstu drög hennar og bjóða upp á umræður um þau. |
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið |
| Hamraborg | 14:00-14:50 | Staða íslenskra fjölmiðla | Bogi Ágústsson, formaður Norræna félagsins, heldur erindi um stöðu íslenskra fjölmiðla, útbreiðslu þeirra, traust, almannaþjónustu, breytingar á fjölmiðlun, ógnanir, málssóknir vegna meintra meiðyrða og falskar fréttir. Hann ræðir einnig breytingar á fréttaöflun og dreifingu frétta og helstu vandamál sem við er að glíma í þeim efnum. | Norræna félagið/Norden i fokus |
| Bót | 14:00-16:00 | Listasmiðja fyrir fjölskyldur og börn | Búin verður til sameiginlegur skúlptúr sem fjallar um það að vera einstaklingur í samfélagi við aðra. Þátttakendur fá tækifæri til að tjá sig myndrænt á sinn einstaka hátt. Einnig verður furðubílasmiðja fyrir börn þar sem þau fá að hanna sinn eigin bíl. Kennarar eru myndlistakonurnar Brynhildur Kristinsdóttir og Dagrún Matthíasdóttir. |
Menningarfélag Akureyrar og Fab Lab |
| Dynheimar | 14:00-15:15 | Framtíðarmenntunin. Hvernig vinnum við með vélmennum? |
Framsóknarflokkurinn | |
| Nanna | 14:00-14:30 | Til hvers eru lýðræðishátíðir? / The power of democracy festivals |
Lately, in various countries radicalization of the political landscape has brought about a rise in statements that even a few years ago would have been widely condemned, but have now become commonplace. Radical forces are bringing racism and intolerance to the public arena, sometimes making more moderate and tolerant people less inclined to share their opinions. As a result, controversial issues are mostly debated in the public space by loud, radical voices. What could we do to bring about more educated debates and opinion sharing in our societies? How could we encourage people to speak in a more respectful manner towards other parties, even if they have diverse opinions? Representatives from the Democracy Scene at the Folkemødet (Danish people’s meeting), conversation festival LAMPA in Latvia, Almadalsveckan in Sweden and Fundur fólksins in Iceland will seek answers to these and other questions. The goal of the event is to bring about discussion on the current state of opinion culture in Denmark, Island, Sweden and Latvia and in the region, taking into account the geopolitical situation and radicalization of the political landscape. |
Democracy festivals |
| Setberg | 14:00-14:50 | Díalektísk messa | Vésteinn Valgarðsson, forstöðumaður DíaMats, hefur framsögu og kynnir félagið og lífsskoðun þess: díalektíska og sögulega efnishyggju. Eftir framsöguna eru frjálsar, fjörugar og fróðlegar umræður um efnið, þar sem tilgangurinn er að allir þátttakendur verði nokkurs vísari. Boðið verður upp á messukaffi. | DíaMAt - félag um dílaektíska efnishyggju |
| Sófaspjall | 14:00-14:30 | Bleikir skattar í heilbrigðiskerfinu, Hanna Katrín |
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar | Viðreisn |
| Hamrar | 14:30-15:30 | Af hverju borga ég í stéttarfélag? Ungt fólk og stéttarfélög |
Allt sem þig hefur langað að vita um stéttarfélög! Hvaða þjónustu getur þú fengið hjá þínu stéttarfélagi, hvernig getur það hjálpað þér ef þú þarft á aðstoð að halda og hvernig getur þú haft áhrif í þínu stéttarfélagi. | Eining-Iðja, FVSA, RSÍ, Samiðn, SGS og ASÍ |
| Svalir | 14:30-15:00 | Framtíð geðheilbrigðisþjónustunnar: Samþætt nálgun? |
Gísli Kort Kristófersson, formaður hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri. | Háskólinn á Akureyri |
| Nanna | 15:00-15:50 | Allir elska SKAM! | Allir elska SKAM-þættina norsku. Þeir eru ekki bara vel gerðir og veita frábæra innsýn í líf ungs fólks í dag heldur kenna þeir okkur líka sitthvað um norska og norræna dægurmenningu og eru afbragðs norskukennsla. Kolbrún Ýrr Bjarnadóttir og Eyrún Huld Haraldsdóttir, kennarar við MA, ræða þættina við ungt fólk á Akureyri. |
Norræna félagið/ Norden i fókus |
| Sófaspjall | 15:00-15:30 | Þjóðfélagsbreytingar, óskhyggja og raunsæi | Alþýðufylkingin | |
| Dynheimar | 15:30-16:30 | Borgarleg ferming og aðrar athafnir Siðmenntar |
Borgaraleg ferming er valkostur fyrir börn sem vilja ekki undirgangast trúarheiti. Vinsældir fermingarfræðslunnar hafa aukist verulega og tóku yfir 9% barna á fermingaraldri þátt í henni á árinu 2017. Vinsældir annarra veraldlegra athafna, s.s. nafngjafa, giftinga og útfara, hafa einnig vaxið mjög hratt. Giftingar á vegum Siðmenntar hafa lagalegt gildi þar sem félagið er skráð lífsskoðunarfélag. |
Siðmennt |
| Hamraborg | 15:30-16:30 | Norræn velferð - Evrópsk samvinna | Framsögufólk: Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, Dóra Sif Tynes, héraðsdómslögmaður og varaþingmaður Viðreisnar, og Páll Rafnar Þorsteinsson heimspekingur. |
Viðreisn |
| Sófaspjall | 15:30-16:00 | Spjallað um Bjarta framtíð | Í sófann mæta formaður Bjartrar framtíðar, Óttarr Proppé, s tjórnarformaðurinn Guðlaug Kristjánsdóttir, þingmaðurinn Nichole Leigh Mosty og aðstoðarmaður umhverfisráðherra Þórunn Pétursdóttir. |
Björt framtíð |
| Sófaspjall | 16:00-16:30 | Sjálfstæðisflokkurinn | Sjálfstæðisflokkurinn | |
| Svalir | 16:00-16:50 | Fátækt er ekki aumingjaskapur | Kynning á starfsemi EAPN á Íslandi og Pepp Ísland - Samtökum fólks í fátækt, og samtal um aðstæður fátækra. Pepp Ísland er grasrótarstarf EAPN á Íslandi, og er markmið þess að vinna gegn fátækt og félagslegri einangrun með því að gefa fólki sem býr við kröpp kjör rödd í samfélaginu og tækifæri til að vinna að eigin valdeflingu. Samtökin eru einnig starfandi á Akureyri og gefst gestum færi á að kynna sér hvað þeir geta gert til að stuðla að öflugri hreyfingu fátækra í sínu nærumhverfi. |
EAPN á Íslandi og Pepp Ísland |
| Hamrar | 16:00-17:00 | Hver er staðan í stefnumótun stjórnvalda í málefnum eldra fólks? |
Þekkingarmiðstöð um öldrunarmál | |
| Nanna | 16:15-17:00 | Samtal og söngur | Flokkur fólksins | |
| Hamragil | 17:00-19:00 | Diskósúpa | Eldað saman úr mat sem annars hefði verið sóað við dillandi tóna DJ Vélarnar. | 1862 og Klúbbur matreiðslumanna á Norðurlandi og áhugafólk um matarsóun |
| Hamragil | 17:00-17:30 | Lokaathöfn | Skemmtiatriði og ávörp | Fundur fólksins |